Skamm skamm...

..þið kjánaökumenn!

Var á smá ferðalagi í dag, stuttu og sætu, með allar stelpurnar mínar. Börnin mín eru það dýrmætasta sem ég á og ég vil helst geta keyrt með þau á þjóðveginum án þess að vera í stórhættu að fá bíl framan á mig. Það munaði einstaklega litlu í dag að einn asninn brunaði beint á okkur, ef ég hefði ekki snarhægt á mér þá hefði getað orðið stórslys....ohhhh....ég verð svo reið þegar ég lendi í svona bjánum.  Angry

Nei í alvöru, mikið svakalega yrði ég glöð ef allir ökumenn keyrðu eins og siðað fólk, á löglegum hraða....get svarið það...af hverju ekki? Við þurfum ekkert að flýta okkur, mig langar allavega ekki að taka þátt í þessari rússnesku rúllettu sem sumum finnst greinilega mjög áhugarverð. 

Æi, er bara svaka pirruð útí það að geta ekki notið þess að keyra út fyrir bæinn með börnin mín án þess að eiga það í hættu að mæta svona fífli eins og ég gerði í dag......

Átti annars fínan dag í sælunni uppí Huldukoti Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Charlotta R. M.
Charlotta R. M.

bara gleði.....

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband